Pétur Arnar ræðst á veðrið og almenningssamgöngur

Pétur Arnar ræðst á veðrið og almenningssamgöngur

12. apríl 2026 kl. 18:37

Það eru varla liðnir 2 mánuðir síðan rokkpillan „Virkur í kommentum“ kom út frá honum Pétri Arnari, að hann lætur til skarar skríða á ný! Að þessu sinni ræðst hann á sjálft veðrið á Íslandi í lagi sem ber einmitt heitið „Íslensk veðrátta“.

Margir hafa samið um sólina, sumarið og vorið, en hann Pétur er ekkert séstaklega hress með verðið í þessu lagi og bölvar veðurspánni kröftuglega og fá almannasamgöngur og stjórnvöld einnig sneiðar í þessu hressilega lagi:

„ Við vöðum skafla hér og norpum úti tíðum
Almannasamgöngunum týnast megum í !
Það er ei heiglum hent að hjóla í vetrarhríðum
Við búum einfaldlega ekki’ á Kanarí..“


Trölli: „En Pétur, er þetta ekki soldið að berjast við vindmyllur að setja sig á móti sjálfu veðrinu?“


Pétur: „ Kannski! Þetta lag varð til árið 2021 í iðnaðrahúsnæði úti í Hellum í Hafnarfirði þar sem hljómsveitin sem ég er, Mõhalla Music Company, í hefur aðstöðu. Var ég þarna einn að sýsla í hundvondu veðri og er bjóst til heimferðar og horfði út í rigningarsuddann, hugsaði ég bara upphátt: „Get ekki sagt að ég sé hrifinn af þessu veðri, get ekki sagt að ég nenni´að ganga heim.“ Með þeirri hugsun komu upphafstónar lagsins; ég greip rafmagnsgítar minn og nokkrum mínútum síðar var lagið að komið , þó ég ætti eftir að bæta við erindum og klára textann..

Nú ég þarf víst að nota almannasamgöngur, rafskútu eða tvo jafnfljóta, þannig ég læt mig þessa hluti varða. Mér finnst alltaf jafn súrrealískt þessi aðför yfirvalda að einkabílnum, og bjartsýni um að Borgarlína muni verða til þess að fólk flykkist í Strætó eins og það hafi ekkert betra við tímann að gera en að fara í nauðungarútsýnisferðir um bæinn á leið á áfangastað – þegar kerfinu þóknast að ganga- á meðan akandi getur maður farið stystu leið hverju sinni frá A til B. Þetta er greinilega ekki skipulagt af fólki sem notar þennan ferðamáta sjálft eða hefur minnsta hug á því að gera það! “

„ Þau vilja nú að flestir hjóli’ í vinnu og skóla
Í Strætó krakkarnir víst skulu redda sér
Þau hljóta reykja eitthvað sterkara en njóla
Með sérmerkt lúxusbilastæðin handa sér „

[ Það er greinilegt að Pétri hitnar í hamsi við þegar hann talar um Almannasamgöngur, þannig að við skiptum um umræðuefni ]
„Hverjir flytja þetta með þér ?“

Pétur: „ Það voru meðlimir úr áðurnefndri hljómsveit.:
Aðalflytjandi er ég sjálfur en hún Linda Steingríms syngur með mér bakraddir
Einu sinni sem oftar er það hann Ásgeir Ingi Magnússon sem mundar bassann en sonur hans , Ásgeir Helgi kom með skemmtilegt orgelspil, mixaði og masteraði.
Geir Walter Kinchin ber húðir, og Sævar Árnason snillar aðal gítarsóló lagsins eins og honum einum er lagið.
Ég sá svo um ryþmagítar, útgöngusóló og rest.. „
Pétur lítur á klukkuna og segir afsakandi: „það er Strætó eftir 5 mínútur sem ég þarf eiginlega að ná.. Ég þakka ykkur kærlega fyrir mig og vona að þið tengið við lagið.

Vel á minnst lagið má finna á Spotify og helstu streymisveitum og netverslunum. Myndband er einnig á Youtube !”


Við þökkum Pétri og kveðjum.

FM Trölli